Guðjón að opna pakka.
Ýmislegt verður gert árið 2019 í tilefni 100 ára afmælis fyrsta flugs á Íslandi. Hér á myndinni er Guðjón Ólafsson kennari og flugmódelsmiður að taka á móti módeli af fyrstu flugvél sem flaug á Íslandi 3. september 1919. Þetta er AVRO 504 -K í skalanum 1/3. Það þýðir að vænghafið er 3,60 metrar, þannig að AVRO-inn verður mjög stór. Módelið verður væntanlega til sýnis í Flugsfninu í framtíðinni. Á afmælisdeginum sjálfum þann 3. sept. 2019 verður því flogið í Vatnsmýrinni við Reykjavíkurflugvöll, en þar fór fyrsta flugið fram fyrir hundrað árum.
Guðjón ætlar sér góðan tíma í smíðina, og verður hann með aðstöðu í Flugsafninu. Þar getur fólk fylgst með framvindu smíðinnar.