Myndin er tekin þegar Þristurinn var gangsettur í fyrsta skipti sumarið 2010 á Akureyri. Afi drengsins er starfsmaður Landgræðslunnar og hefur unnið mikið við þessa vél, en faðir hans er flugmaður hjá Norlandair á Akureyri. Sá stutti horfir til framtíðar í gegnum gömlu flugvélina. |