| Um Flugsafn Íslands, Akureyri |
|
|
|
|
Þegar var hafist handa við að koma upp sýningu í flugskýli á Akureyrarflugvelli og þann 24. júní árið 2000 var safnið opnað með formlegum hætti. Flugsafnið keypti síðan þetta hús. Í júní árið 2000 var haldin á Akureyri, í fyrsta skipti svo kölluð Flughelgi á vegum Flugsafnsins og Flugmálafélags Íslands. Þar fer fram Íslandsmót í listflugi og sýnt flug af ýmsu tagi. Samningur var gerður milli þessara aðila um að Flughelgin á Akureyri verði árlegur viðburður í framtíðinni og hefur svo verið. Á aðalfundi safnsins sem haldinn var 26. febrúar árið 2005 var samþykkt að breyta nafni safnsins í FLUGSAFN ÍSLANDS. |






FLUGSAFNIÐ Á AKUREYRI var stofnað 1. maí 1999. Hlutverk Flugsafnsins er að safna, varðveita og sýna muni sem tengjast flug á Íslandi, sögu þess og þróun. Einnig er það markmið safnsins að safna myndum sem tengjast flugsögunni, skrá þær og aðra þá þætti sem hafa menningarsögulegt gildi.