Spjall tengt völlum
Við hvern völl er umsagnasvæði þar sem notendur síðunnar geta sett inn sínar upplýsingar varðandi lendingar á viðkomandi velli, eða sögur tengdar honum.
Við hvern völl er umsagnasvæði þar sem notendur síðunnar geta sett inn sínar upplýsingar varðandi lendingar á viðkomandi velli, eða sögur tengdar honum.
Flugvallahluti vefsíðunnar er byggður út frá myndasafni Mats Wibe Lund, en hann hefur safnað góðu safni af flugvallamyndum um áraraðir. Verkefnið er í umsjá Arngríms Jóhannssonar.
Við suma velli er úrklippa úr AIP Flugstoða. Það skal tekið fram að þau kort sem birtast á þessum vef eru ekki gild flugkort og bent er á síðu Flugstoða varðandi slík gögn.
Þeir sem þekkja sögu smávalla á landsbyggðinni eru hvattir til að senda línu til vefstjóra sem mun koma sögunni á vefinn í samvinnu við viðkomandi sögumann.